fbpx

STÖKKT BRAUÐ MEÐ MOZZARELLA, TÓMÖTUM & BASILIKU

FORRÉTTIR & LÉTTIR RÉTTIRUPPSKRIFTIR

Ef að ykkur langar í dásamlegan forrétt sem er bæði léttur og bragðgóður þá er þetta algjörlega málið! Svo ljúffengt, stökkt og einfalt að útbúa. Ég hef bæði notað súrdeigsbrauð (á það nánast alltaf til í frystinum) eða pretzel. Ég sker brauðið smátt og baka í ofni þar til það verður stökkt. Ber svo fram með ferskum mozzarella, litlum tómötum, ólífuolíu og basilíku.

Fyrir 4
2-3 súrdeigsbrauðsneiðar eða 1 pretzel (keypti í Gulla bakara)
Krydd: salt, hvítlauksduft, laukduft, cayenne pipar
2-3 msk ólífuolía og meira til að toppa réttinn með
Litlir tómatar td. Kokteiltómatar eða medley tómatar
1 fersk mozzarella kúla
Fersk basilíka eftir smekk
Chili flögur og pipar

Aðferð

  1. Skerið brauðið í litla teninga. Blandið saman við ólífuolíu og kryddi.
  2. Dreifið brauðinu á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í ofni við 190°C í 10 mínútur eða þar til brauðið er orðið stökkt. Passið að brenna ekki brauðið.
  3. Skerið tómatana í tvennt.
  4. Dreifið brauðinu í skál eða á djúpan disk og dreifið tómötunum yfir.
  5. Rífið mozzarella í smáa bita og dreifið yfir.
  6. Toppið með ólífuolíu, pipar, chili flögum og nóg af basilíku eftir smekk.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

GRILLAÐAR SAMLOKUR

Skrifa Innlegg