fbpx

GRILLAÐAR SAMLOKUR

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Hér kemur ein djúsí, mjög einföld og ótrúlega góð samloka sem ég útbjó í samstarfi með Innnes. Hún inniheldur uppáhalds hamborgarasósuna mína frá Heinz, skinku, salat, tómata, jalapeno ásamt cheddar-og havarti ost. Nammii! Ég kaupi nánast alltaf þessa sósu þegar við grillum hamborgara en hún er alveg jafn góð á svona djúsí samlokur. Mæli með að bera fram með óáfengum Corona bjór, hann er virkilega góður.

Fyrir tvo
1 súrdeigs baguette (keypti í Krónunni)
Smjör
2 sneiðar kjúklingaskinka (ekki reykt)
4 sneiðar silkiskorin skinka
4 sneiðar havarti ostur
2 sneiðar mjúkur cheddar ostur í sneiðum
1-2 msk jalapeno úr krukku, smátt skorinn
Salat eftir smekk
1 tómatur
Heinz Burger Sauce

 Aðferð

  1. Byrjið á því að skera baquette brauðið í tvennt og svo í þversum þannig að úr verða tvær samlokur.
  2. Smyrjið allar brauðsneiðarnar með smjöri og dreifið skinku, havarti – og cheddar ostasneiðunum ofan á.
  3. Leggið brauðið ofan á ofnplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 180°C. Mæli með að stilla á grill á ofninum.
  4. Því næst dreifið jalapeno eftir smekk, salati, tómötum og sósunni. Lokið samlokunum og njótið.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

HELGARKOKTEILLINN: JARÐARBERJA GIN & TÓNIK

Skrifa Innlegg