fbpx

RISOTTO MEÐ PARMA SKINKU, FERSKUM ASPAS & SÍTRÓNU

AÐALRÉTTIRUPPSKRIFTIR

Einn af mínum uppáhalds réttum er risotto og mér finnst mjög gaman að prófa mig áfram með hráefnin. Hér kemur uppskrift að risotto með stökkri parmaskinku í hlynsírópi, ferskum aspas og sítrónuberki. Þessi blanda er mjög góð en ég fékk hugmyndina úr bók frá minni uppáhalds Donna Hay. Parma skinkan verður svo extra stökk og ljúffeng svona ofnbökuð með hlynsírópi. Mæli með að þið prófið.

Fyrir 2-3
3 dl arborio hrísgrjón
9-10 dl kjúklingasoð (vatn og kjúklingateningur)
2 msk smjör
1 dl hvítvín
1 laukur
1-2 hvítlauksrif
Salt og pipar
1 dl parmesan ostur + meira til að bera fram með
1 pkn parmaskinka
1-2 msk hlynsíróp
Rifinn sítrónubörkur af ½-1 sítrónu
8-10 stk ferskur aspas

Aðferð

  1. Hellið vatni í pott og hitið. Bætið kjúklingateningi út í og hrærið saman við. Haldið kjúklingasoðinu heitu á vægum hita.
  2. Skerið laukinn smátt og steikið á pönnu upp úr smjöri.
  3. Pressið hvítlaukinn út í og hellið arborio grjónunum saman við og hrærið.
  4. Þegar grjónin eru orðin smá glær á endunum hellið þá hvítvíninu út í og hrærið saman við. Þau eru fljót að drekka í sig hvítvínið.
  5. Hellið því næst 1-2 dl af soðinu út í og hrærið. Þegar grjónin eru búin að drekka í sig soðið þá hellið þið aftur 1-2 dl af soði út í og hrærið. Gerið þetta koll af kolli þangað til að soðið er búið og grjónin tilbúin. Þau eiga að vera mjúk og rjómakennd. Ég mæli með því að smakka og ef þau eru ennþá seig bætið þá meira vatni við. Saltið og piprið eftir smekk.
  6. Dreifið svo rifnum parmesan ostinum út í og hrærið.
  7. Dreifið parmaskinkunni á bökunarplötu þakta bökunarpappír og penslið yfir með hlynsírópi. Bakið í 10-12 mínútur við 190°C eða þar til hún verður stökk.
  8. Skerið aspasinn í þunnar og langar sneiðar. Steikið upp úr ólífuolíu á pönnu og saltið og piprið eftir smekk. Rífið sítrónubörkinn í skál.
  9. Berið risottoið fram með parmaskinkunni, aspasnum, sítrónuberkinum og parmesan osti eftir smekk. Njótið.

Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

ÖÐRUVÍSI BAUNASÚPA Á SPRENGIDAG

Skrifa Innlegg