Hvað er betra en djúsí og ljúffengt pasta á svona dögum? Penne pasta með rjómaosti, hvítlauk, chili, ítölsku salami, ferskum tómötum, ferskri basilíku og burrata osti sem ég útbjó í samstarfið við Innnes. Tekur enga stund að skella í þennan rétt. Sjóða pasta og græja sósuna á meðan. Blandar öllu saman og voila! Mæli með að bera fram með léttu og ljúffengu rauðvíni og nýbökuðu hvítlauksbrauði.
Fyrir 3-4
300 g De Cecco penne pasta
2 msk ólífuolía
3 hvítlauksrif, kramin eða rifin
1 chili
Salt og pipar
300 g kokteiltómatar eða aðrir litlir tómatar
150 g ítalskt salami
2 msk fersk basilíka
3 msk philadelphia rjómaostur
½ dl parmigiano reggiano
½ – 1 dl pastavatn
Toppa með:
1 burrata ostur
Fersk basilíka
Parmigiano Reggiano
Aðferð
- Byrjið á því að skera tómatana í tvennt. Smátt skerið chili og salami og pressið hvítlaukinn.
- Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu og á meðan útbúið þið sósuna.
- Steikið chili og hvítlauk upp úr ólífuolía á vægum hita.
- Bætið salami saman við.
- Hellið tómötunum útí og látið þá malla aðeins þar til þeir verða mjúkir.
- Bætið basilíkunni og rjómaosti útí og hrærið saman.
- Hellið pastavatni útí til að þynna sósuna og saltið og piprið eftir smekk.
- Að lokum toppið með burrata osti, ferskri basilíku, meiri parmigiano eftir smekk og njótið.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg