Þetta ostasalat er svo dásamlega ljúffengt. Einfalt að útbúa það og passar sérlega vel með kexi og hrökkbrauði. Svo er það er líka tilvalið fyrir þá sem eru í ketó. Mér finnst svakalega gott að fá mér hrærð egg og avókadó með ostasalatinu. En einnig er frábært að bera það fram í veislum, slær alltaf í gegn! Innblásturinn af ostasalatinu er salat sem við og tengdafjölskyldan mín borðuðum mikið af á Flórída síðustu páska. Við gátum ekki hætt að kaupa það og ég gat ekki hætt að hugsa um það. Ég varð að prófa að gera mína útfærslu af því og það heppnaðist svo vel. Í uppskriftinni eru litlar paprikur en einnig er hægt að nota bara þessar venjulegu paprikur í staðinn. Ég mæli líka með að smakka sig áfram með jalapeno.
- Rífið cheddar ostinn með rifjárni (eða kaupið hann rifinn).
- Skerið jalapeno og paprikur smátt.
- Hrærið rjómaosti og majónesi saman.
- Hrærið öllu vel saman í skál með skeið og berið fram með kexi.
Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! :)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg