fbpx

KJÚKLINGUR Í RJÓMAOSTASÓSU MEÐ SVEPPUM & ESTRAGON

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Ljúffengur helgarmatur sem er fullkominn með góðu rauðvíni. Þessa djúsí uppskrift gerði ég í samstarfi við Innnes, kjúklingur í rjómaosta- og estragonsósu með sveppum og borinn fram með tagliatelline. Philadelphia rjómaosturinn og estragonið setja svo punktinn yfir i-ið. Það er einnig gott að bera réttinn fram með hrísgrjónum eða byggi og góðu salati. Innblásturinn af þessari uppskrift er réttur sem mamma gerði svo oft sem sló alltaf í gegn og ég varð að prófa að gera mína útgáfu. Það er auðvelt og þægilegt að útbúa réttinn og ég mæli með að þið prófið!

Uppskrift fyrir 3-4
600 g úrbeinuð kjúklingalæri
1-2 msk smjör til steikingar
1 lítill laukur, smátt skorinn
8-10 sveppir, skornir í sneiðar
2 dl rjómi
½ pakkning Philadelphia rjómaostur
1 msk dijon sinnep
3-4 tsk estragon
1 tsk kjúklingakraftur frá Oscar
Salt og pipar eftir smekk
Tagliatelline frá De Cecco

Aðferð

  1. Byrjið á því að steikja kjúklinginn upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar. Steikið þangað til að hann er eldaður í gegn og takið til hliðar.
  2. Steikið lauk og sveppi upp úr smjöri á sömu pönnu.
  3. Bætið út í rjóma, rjómaosti, dijon sinnepi, estragoni, kjúklingakrafti, salti og pipar. Hrærið saman og látið malla í smá stund. Mæli með að smakka sósuna til.
  4. Sjóðið tagliatelline eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  5. Blandið kjúklingnum saman við sósuna, berið fram með tagliatelline og njótið!

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & GÓÐA HELGI! ♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

MYNDBAND: DJÚSÍ OG LJÚFFENGAR KJÚKLINGA VEFJUR 

Skrifa Innlegg