Ferskt og gott guacamole með mangó og fetaosti. Berið það fram með tortillaflögum eða með uppáhalds mexíkóska réttinum ykkar.
2 avocado
1/2 sítróna
1/3-1/4 fetakubbur
Ólífuolía
Salt og pipar
1 chili
1-2 msk blaðlaukur
1 mangó, smátt skorið
-
Blanda saman avocado, sítrónusafa, fetaosti, ólífuolíu, salti og pipar í töfrasprota eða matvinnsluvél. Ef þið ætlið að gera gróft guacamole er betra að stappa innihaldsefnunum saman.
-
Skerið mangó, chili og blaðlauk smátt og blandið saman með skeið.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
//HILDUR RUT
Skrifa Innlegg