fbpx

FERSKT KJÚKLINGASALAT MEÐ JARÐABERJUM & PARMESAN

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Ferskt og gott kjúklingasalat sem ég gerði í samstarfi við Innnes. Kjúklingabringur, ferskur aspas, stökk hráskinka, jarðaber, avókadó, parmigiano reggiano ásamt fleiri dásemdar hráefnum í ferskri salatdressingu. Þessi samsetning lætur bragðlaukana gjörsamlega dansa. Hvítlauks grillolían frá Caj P gerir kjúklinginn svo einstaklega bragðgóðan. Ég er búin að nota þennan kryddlög ansi mikið í sumar enda passar hann með mörgu. Mæli með að bera þetta fram með volgu hvítlauksbrauði og glasi af köldu rósavíni með réttinum ef þið eruð í þannig stuði. :)

Fyrir 3
3 kjúklingabringur frá Rose poultry
1 dl Caj P grillolía með hvítlauk
10 ferskir aspasstilkar, skornir í bita
Ólífuolía
Salt & pipar
70 g hráskinka
1 msk hlynsíróp
125 g salatblanda
10-12 jarðaber frá Driscolls
10-12 kokteiltómatar
Rauðlaukur eftir smekk
1-2 avókadó
Parmigiano Reggiano eftir smekk

Salatdressing
80 ml ólífuolía
4 msk ferskur appelsínusafi
Safi úr ½ sítrónu
1 tsk salt
2 hvítlauksrif, pressuð
1 dl fersk steinselja

Aðferð

  1. Skerið kjúklingabringurnar í tvennt (má sleppa). Blandið þeim saman við grillolíuna í skál og leyfið þeim að marinerast í 30 mínútur eða lengur.
  2. Grillið kjúklinginn í 15-20 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Skerið hann í sneiðar.
  3. Dreifið hráskinku og aspas á ofnplötu þaktri bökunarpappír. Penslið hráskinkuna með hlynsírópi og dreifið ólífuolíu, salti og pipar á aspasinn. Bakið í 8-10 mínútur við 180°C. Passið að hráskinkan brenni ekki. Brjótið hráskinkuna í minni bita.
  4. Skerið jarðaber, kokteiltómata, rauðlauk og avókadó í bita eftir smekk. 
  5. Dreifið salatblöndu í botninn á stórri fallegri skál. Því næst dreifið þið rauðlauk, kjúklingi, hráskinku, aspas, jarðaberjum, tómötum og avókadói.
  6. Hellið salatdressingunni jafnt yfir og stráið rifnum parmesan osti (parmigiano reggiano) yfir allt saman. Berið fram með meiri parmesan osti og njótið.

Salatdressing

  1. Smátt skerið steinseljuna. 
  2. Hrærið saman ólífuolíu, appelsínusafa, sítrónusafa, salti, pressuðum hvítlauksrifjum og steinselju í skál.

Fallega svarta skálin er frá Ramba store. Ég fékk hana í jólagjöf og hún fæst hér.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ VEL! 

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

AFFOGATO EFTIRRÉTTAKOKTEILL

Skrifa Innlegg