Ég gerði þessa einföldu eplaböku í samstarfi við Innnes og vá hvað hún er góð! Ég hef oft borið slíka böku fram sem eftirrétt og hún slær alltaf í gegn. Hér eru það Dumle karamellurnar sem setja punktinn yfir i-ið og gera eplabökuna svo einstaklega bragðgóða. Þær hafa lengi verið í uppáhaldi hjá mér en mér finnst svo ljúffengt að nota þær í alls kyns eftirrétti. Svo finnst mér líka frábært að útbúa svona góðgæti í sumarbústaðarferðunum. Þá mæli ég þurrefnin heima, tek með í boxi eða poka og þá tekur enga stund að töfra þetta fram í bústaðnum.
Fyrir 4-6
3 epli (ég notaði jonagold)
2-3 msk kanilsykur, eða eftir smekk
80 g hveiti
70 g tröllahafrar
100 g sykur
100 g smjör við stofuhita
10 stk Dumle karamellur
Aðferð
- Skrælið eplin og skerið í sneiðar.
- Dreifið eplasneiðunum í eldfast form og stráið kanilsykrinum yfir. Veltið eplasneiðunum vel upp úr kanilsykrinum.
- Blandið saman hveiti, tröllahöfrum og sykri í skál. Bætið svo smjörinu út í og hnoðið með höndunum.
- Dreifið deiginu yfir eplin.
- Skerið Dumle karamellurnar í bita. Ég sker eina karamellu í fjóra bita. Dreifið þeim yfir deigið.
- Bakið í 30-35 mínútur við 190°C. Frábært bera bökuna fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! :)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg