fbpx

ÁRAMÓTA OSTAKÚLA

FORRÉTTIR & LÉTTIR RÉTTIRUPPSKRIFTIRVEISLUR

Gómsæt ostakúla úr Philadelphia rjómaosti með sweet chili, rauðlauk, sólþurrkuðum tómötum, pimiento papriku og ristuðum pekanhnetum. Undursamleg blanda sem ég útbjó í samstarfi við Innnes. Ég hef oft útbúið ostakúlu en þessi útgáfa er sú allra besta sem ég hef gert. Svo er hún geggjuð á ostabakkann um áramótin. Mæli með að bera fram með ljúffengu freyðivíni.

2 dl pekanhnetur
40 ml síróp
2 msk ólífuolía
1 og ½ pkn Sweet chili Philadelphia rjómaostur
1-2 msk smátt skorinn rauðlaukur
3 msk smátt skornir sólþurrkaðir tómatar
½ dl smátt skorin pimiento paprika

Aðferð

  1. Byrjið á því að blanda pekanhnetum, sírópi og ólífuolíu saman.
  2. Dreifið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 180°C. Hrærið reglulega í hnetunum og passið að þær brenni ekki.
  3. Kælið hneturnar og skerið þær smátt.
  4. Blandið saman rjómaosti, smátt skornum rauðlauk, smátt skornum sólþurrkuðum tómötum, smátt skorinni papriku og 1-2 msk af smátt skornum pekanhnetum.
  5. Mótið kúlu úr rjómaostablöndunni með höndunum.
  6. Dreifið pekanhnetunum á bökunarpappír og þekið rjómaostakúluna með þeim.
  7. Setjið kúluna á fallegan disk eða bakka og berið fram með uppáhalds kexinu ykkar.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ ÁRAMÓTANA!♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

LJÚFFENG HUMARSÚPA: MYNDBAND

Skrifa Innlegg