fbpx

LJÚFFENG HUMARSÚPA: MYNDBAND

AÐALRÉTTIRFORRÉTTIR & LÉTTIR RÉTTIRUPPSKRIFTAMYNDBÖNDUPPSKRIFTIR

Þessa klassísku og ljúffengu humarsúpu útbjó ég í samstarfi við Innnes og það besta við hana er að hún er jafnvel ennþá betri daginn eftir. Þá er gott að sleppa því að setja humarinn út í súpuna og setja hann ofan í áður en þið berið hana fram. Planið mitt er að útbúa þessa súpu á Þorláksmessu og bera hana fram sem forrétt á aðfangadag. Þetta er í fyrsta skipti sem við höldum jólin heima hjá okkur og þar af leiðandi í fyrsta skipti sem ég elda mat á aðfangadagskvöld. Ég er mjög spennt og þessi humarsúpa verður frábær forréttur. En ef að þið viljið meiri mátlítð úr súpunni þá mæli ég með að bæta við meiri humar í súpuna. Mér finnst humarkrafturinn frá Oscar og smá red curry frá Blue dragon setja punktinn yfir i-ið og gefa súpunni svo gott bragð.


Fyrir 6
600 g humar frá Sælkerafiski
1 msk ólífuolía
30 g smjör
2 gulrætur
1 laukur
1 lítill vorlaukur
1 rauð paprika
3 hvítlauksrif
3 msk tómatpúrra frá Hunts
1 msk fersk steinselja
Salt og pipar eftir smekk
2 msk humarkrafur frá Oscar
1 kjúklingakraftur frá Oscar
1-2 tsk Thai red curry frá Blue dragon
1 lítri vatn
2 dl Muga Rioja hvítvín
500 ml – 800 ml rjómi

Berið fram með léttþeyttum rjóma og ferskri steinselju

Aðferð

  1. Byrjið á því að blanda einu pressuðu hvítlauksrifi og ólífuolíu saman við humarinn og takið hann til hliðar.
  2. Skerið gulrætur, lauk, vorlauk og papriku gróft.
  3. Steikið upp úr smjöri og leyfið því að mýkjast.
  4. Bætið við tveimur pressuðum hvítlauksrifum, steinselju, hvítlauki, tómatpúrru, humarkrafti, kjúklingakrafti, salt og pipar. Hrærið öllu vel saman.
  5. Bætið vatni saman við og hrærið. Setjið lok á pottinn og leyfið súpunni að malla á vægum hita í eina klukkustund.
  6. Notið töfrasprota til að mauka súpuna. Maukið þar til hún verður slétt og allt grænmetið vel blandað.
  7. Blandið hvítvíni og rjóma saman við og leyfa að malla í 5 – 10 mínútur. 
  8. Bæta humri saman við í lokin og leyfið honum að eldast í 2-3 mínútur.
  9. Berið fram með léttþeyttum rjóma og steinselju.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ!♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

LITLAR DÖÐLUKÖKUR MEÐ KARAMELLUSÓSU: MYNDBAND

Skrifa Innlegg