Færslan er unnin í samstarfi við mína eigin verslun AndreA.
Tískuvikan virkar þannig að við pöntum alltaf sex mánuði fram í tímann. Myndirnar hér fyrir neðan eru teknar á tískuvikunni í Kaupmannahöfn í ágúst 2018. Ég er sem sagt búin að bíða eftir þessum gula kjól ásamt allri línunni frá Notes Du Nord í rúma sex mánuði … “Story of my life”.
Núna er guli kjólinn minn, ég er þó ekki alveg jafn sæt í honum núna þar sem að ég er nánast samlit kjólnum eftir veturinn :)
Þá hefst biðin eftir sumri, sól & tækifæri til að geta notað hann.
Ég gæti líka notað hann núna með kinnalit í kinnum, leggings undir & leðurjakka yfir en ég er svolítið að vinna með það þessa dagana enda fátt annað í boði.
–
Við pöntuðum þessar vörur í dásamlega fallegu veðri í Kaupmannahöfn, Ísabella dóttir mín var aðstoðarkona mín að þessu sinni.
Ég & Sara eigandi Notes Du Nord.
Besta kaffið á tískuvikunni.
Núna eru allar þessar dásamlegu fallegu og vönduðu vörur mættar í búðina og ekkert eftir annað en að klæðast þeim og njóta en í millitíðinni er ég búin að fara á aðra tískuviku og bíð nú eftir trylltum flíkum úr þeirri línu sem við fáum í agúst. Svona er tískan. <3
–
SS 19 línan frá Notes Du Nord er ekta dönsk… þægilegir sumarkjólar sem fallegt er að para við flotta strigaskó. Geggjaður rykfrakkinn frá þeim með trylltum smáatriðum, “leopard” eða blettatígurs munstrið í nokkrum flíkum í bland við milda draumkennda sumarliti. Ótrúlega falleg lína sem fæst hjá okkur í AndreA en við pöntum þó lítið af hverri flík svo að þessi lína kemur í takmörkuðu upplagi.
LoveLove
AndreA
Instagram: @Andreamagnus
Instagram: @andreabyandrea
Skrifa Innlegg