Magnaðir dagar að baki…
Skemmtilegir, hraðir, stressandi & gefandi … já allur skalinn.
Hér eru bakvið tjöldin/símamyndir frá síðustu vikum en eins og margir vita fór fjórði Konur eru konum Bestar bolurinn í sölu í gær.
Undirbúningur er töluverður og í ár þurftum við að hugsa allt upp á nýtt út af Covid. Leiðinlegast var sennilega að geta ekki haldið viðburð og hitt ykkur öll. Í staðinn sátum við fjórar í fallega Make-up studio Hörpu Kára með síma & tölvur að vopni. Við sáum það eftir á að sennilega vorum við undir smá áhrifum frá upplýsingafundum almannavarna með uppstillinguna, haha : )
Aldís – Nanna – Elísabet & Andrea
Annars er þakklæti efst í huga. Þakkir til allra sem hafa lagst á eitt til að hjálpa okkur, takk allir sem komu til okkar í myndatöku & TAKK allir sem tókuð þátt í verkefninu með því að kaupa bol <3
Súper glaðar konur með daginn <3 TAKK
xxx
AndreA
Skrifa Innlegg