Færslan er unnin í samstarfi við AndreA
Þessi dásamlega fallegi silkikjóll frá Notes du Nord heitir Odeon en síðan við vorum á tískuvikunni í Kaupmannahöfn í ágúst þá höfum við vinkonurnar kallað kjólinn Helenu kjólinn. Ástæðan er einföld, Helena var sjálf í þessum ótrúlega fallega kjól á tískuvikunni.
Helenu Christensen þarf varla að kynna en hún er ein af frægustu fyrirsætum heims fyrr og síðar, hún hefur átt ótrúlega langan og farsælan feril. Í dag vinnur hún meira hinum megin við linsuna, hún er ljósmyndari og myndaði t.d herferðina fyrir þessa línu hjá Notes du Nord. Hún er dönsk en búsett í NYC. Hér finnið þið Instagrammið hennar: @helenachristensen
Hún er svo glæsileg þessi kona að það nær engri átt og hún seldi okkur þennan kjól á augabragði.
Hér sjáið þið afhverju …
Myndir: Aldís Páls / @paldis
Hér má svo sjá kjólinn á sýningunni sjálfri …. 100% silki, æðislegir litir & munstur, púff ermar, pífur, rykkingar yfir magann og klauf = algjör draumur. Kjóllinn fæst HÉR.
Svo við …. Ég á reyndar sjálf eftir að dressa mig betur upp og fara í hæla við hann, en ég fór í hann einn sunnudaginn í samkomubanninu, #kjólaaskorun
Hann var eiginlega bara æðislegur líka við ullarpeysu og inniskó :)
Svo vinkonur mínar á Akranesi @paldis & @Hrefnadan
https://www.instagram.com/p/B-4iy1lAmNX/
xxx
AndreA
https://www.instagram.com/p/B-4iy1lAmNXRPTT_y593WMSuwGeRSP_2CgYEck0/%20
http://https://www.instagram.com/p/B-nUT1WA8Y3/
http://https://www.instagram.com/p/B-nUT1WA8Y3/
Skrifa Innlegg