* vöruna fékk ég að gjöf
ANGAN Volcanic glow BODY OIL …
Þetta er akkúrat það sem mig vantaði við þetta endalausa pilsa & kjóla veður sem Ísland er að bjóða uppá þessa dagana.
Ég fékk vöruna að gjöf fyrir nokkru síðan, olían stóð hér á borðinu í nokkra daga áður en ég prófaði hana, þegar ég var búin að prófa einu sinni var ekki aftur snúið, þetta er snilld & íslensk snilld fyrir þá sem ekki vita.
Mig langaði svo að sýna ykkur litinn á olíunni en hún er svona gull/brons lituð. Húðin fær ekki bara fallegan lit og gljáa heldur líka mikla næringu & raka. Þið getið lesið meira um þessa snilld HÉR .
Ég er aðallega að nota þetta á fæturnar þegar ég er í kjól eða pilsi en olían er líka mjög falleg á hendur & bringu.
Mæli með <3
ANGAN fæst t.d í Litlu hönnunarbúðinni í Hafnarfirði, HAF store og HÉR má sjá alla útsölustaði.
LoveLove
AndreA
Instagram @andreamagnus
Skrifa Innlegg