Fatnaður úr eigin verlsun/AndreA
Þetta dress (peysa) er fullkomið sunnudags dress, reyndar er þetta frábært dress alla aðra daga líka. Peysan er svona flík sem manni langar að fara í alla morgna alltaf. Mjúk, síð, hlý & kósí. Ég er búin að nota hana heima við heimsins bestu inniskó, dressa hana við “boots” og vera í henni yfir gallabuxur, það virkar allt. 👌 Liturinn er líka í miklu uppáhaldi og smellpassar við litapallettuna sem ég er að vinna með þessa dagana.
Peysa: MbyM
Inniskór: EMU
Boots: BILLIBI
Taska: AndreA Skjalataska
xxx
AndreA
IG @Andreamagnus
Skrifa Innlegg