Danska merkið Notes Du Nord er í miklu uppáhaldi hjá mér, ég sagði ykkur frá því HÉR þegar ég sá sumarlínuna þeirra í tískuvikunni í Kaupmannahöfn í ágúst.
Kjólarnir, litirnir og sniðin ég féll í stafi. Sex mánuðum síðar eru þeir komnir beint í samkomubann og páskahret :)
En fallegir eru þeir …
Fyrst innkaupin. Máta – panta & svo bíða í sex mánuði (það er alltaf erfiðast).
Svo sýningin / Myndir : Aldís Páls @paldis
Og svo í dag er ég loksins að hengja þessar gersemar upp í búðinni minni sem er svo lokuð :/
Ég byrjaði í gærkvöldi að setja þá inn á AndreA.is og held áfram í dag. Þið finnið þá líka á Instagram story í dag @andreabyandrea
ps. Það má vera í samkvæmiskjól í samkomubanni :)
xxx
Andrea
Skrifa Innlegg