Ljúffengt og létt eggjasalat sem passar vel á hrökkbrauð með avókadó. Egg, rifinn cheddar ostur, sýrður rjómi og krydd er gómsæt blanda sem klikkar ekki. Frábært sem millimál eða í hádegismat með grófu brauði.
4 soðin egg
1 dl cheddar ostur
½ – 1 dl sýrður rjómi
Krydd: Cayenne pipar, salt og pipar
Aðferð
- Takið skurnina af eggjunum og skerið þau í litla bita með eggjaskera á meðan þau eru ennþá heit.
- Hrærið cheddar ostinum saman við eggin og svo sýrðum rjóma.
- Kryddið eftir smekk og berið fram með avókadó og hrökkrbauði.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg