HI !
Hailey Bieber er með mjög einkennandi stíl þegar kemur að hári og förðun. Hún er yfirleitt alltaf fallega náttúrulega förðuð og rokkar þetta eftirsótta no makeup makeup look.
HÚÐ
- Húðin hennar er alltaf frískleg og geislandi
- Húðin lítur ávallt út fyrir að vera lítið máluð en það er mikil kúnst að ná fram því útliti
- Hailey er sjaldnast mikið contouruð en hún er alltaf sun kissed
- Notaðir eru mismunandi litir af sólarpúðri og highlighterum til að ná fram þessu eftirsótta looki
AUGU
- Bronze og bleikir tónar eru einkennandi fyrir augnförðunina hennar Hailey
- Hún hefur skygginguna alltaf eins nálægt augnhárarótinni og hægt er
- Hailey er sjaldnast með augnhár og heldur maskaranum í lágmarki
- Hún er dugleg að leika sér með skemmtilega liti í vatnslínu en við höfum séð hana með brúna, bronze, rauðan og svartan í vatnslínunni
VARIR
- Hailey er yfirleitt alltaf með aðeins overline-aðar varir og nude litatóna
- Okkur þykir það líklegt að hún noti fljótandi contour í kringum varirnar eftir farða og noti síðan jarðtóna varablýant til að ýkja stærð varanna, sérstaklega efst hjá varalínunni
HÁR
- Hailey er mjög dugleg að breyta til þegar kemur að hári
- Hún er með nokkra einkennandi hárstíla sem við sjáum hana oft með
- Töff hátt tagl eða half up ponyytail
- Lágur sleek bun eða top knot, þá er snúðurinn gerður mjög hátt uppi
- Beach waves, látlaus hárstíll þegar hárið er niðri
Við elskum að fylgjast með stílnum hennar Hailey, hún kemur sífellt á óvart með látlaus look og við hlökkum til að sjá hvernig stíllinn hennar mun halda áfram að þróast.
Hér er hægt að fylgja Hailey á instagram
Góða Helgi xx
________
Instagram @the_hibeauty
snyrtinamskeid.is
thehibeauty.com
Skrifa Innlegg