fbpx

TRENDNÝTT

ÞETTA ER ÍSLENSK HÖNNUN…

FÓLK

Í október fer í fyrsta sinn af stað einstakt átak þar sem vakinn er athygli á íslenskri hönnum. Trendnet hefur tekið eftir íslenskri hönnun á umhverfismiðlum höfuðborgarinnar og við fyllumst stolti við sjónina. Það er Eyjólfur Pálsson, gjarnan kenndur við Epal, sem stendur að baki átakinu.

“Við munum birta slíkar auglýsingar á mínútu fresti í heila viku, 17.-23. október,“ segir Eyjólfur

„Íslensk hönnun fær ekki alltaf þá athygli og virðingu sem hún verðskuldar og hef ég í gegnum tíðina reynt ýmsar leiðir til að koma henni betur á framfæri. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að við öll, sem seljum, hönnum, framleiðum eða einfaldlega elskum íslenska hönnun, tökum höndum saman til að styðja við þessa mikilvægu iðngrein,“


MAGNEA

LESIÐ LÍKA: MADE IN REYKJAVIK

Ástríða Eyjólfs fyrir hönnun nær langt út fyrir hans eigin rekstur og var honum sérlega umhugað að um samvinnuverkefni væri að ræða sem endurspegli breidd íslenskrar hönnunar og fékk því Miðstöð hönnunar og arkitektúrs til liðs við sig og óskaði eftir að hún leggði til hugmyndir um fjölbreytta og fallega íslenska hönnun sem er nú þegar í sölu eða notkun.

„Úr varð ótrúlega fjölbreyttur flokkur hönnunargripa, um 60 talsins, sem varpað verður upp á skjái um allt höfuðborgarsvæðið. Hlutirnir á skiltunum munu spanna allt frá flothettum og fötum yfir í gistivagna, húsgögn og tölvuleiki,“ segir Eyjólfur og segir undirtektirnar hafa verið mjög góðar, enda ljóst að allir sem standa að eða unna íslenskri hönnun njóta góðs af því að virðing sé efld fyrir henni.

Hér að neðan eru nokkur dæmi um íslenska hönnun sem mætir okkur á götum borgarinnar um þessar mundir.

STUDIO FLÉTTA

66°NORÐUR

LESIÐ LÍKA: HILDUR YEOMAN x 66°NORÐUR

HLDUR YEOMAN

LESIÐ LÍKA: HILDUR YEOMAN KLÆDDI MARGAR AF SKÆRUSTU STJÖRNUM AIRWAVES

Brýn þörf á innkaupastefnu gagnvart íslenskri hönnun og framleiðslu

Eyjólfur bendir á að sýnileiki skipti máli, og ekki bara á ljósaskiltum. „Frændur okkar, Danir, leggja til dæmis ávallt áherslu á eigin framleiðslu og hönnun í stofnunum, byggingum, opinberum verkefnum og öllu kynningarefni, eins og í bíómyndum. Þetta gera Danir á hreinum viðskiptalegum forsendum en hönnun er einn helsti drifkrafturinn að baki aukinni verðmætasköpun, meiri lífsgæðum, sjálfbærni og betra þjóðfélagi. Opinberar byggingar eru stolt þjóðar og eiga að endurspegla þann faglega metnað sem við búum yfir, bæði hvað varðar listmuni og arkitektúr en ekki síður hönnunarvörur,“ segir Eyjólfur og bendir á að brýn þörf sé á innkaupastefnu gagnvart íslenskri hönnun og framleiðslu.

SVEINN KJARVAL

VÍK PRJÓNADÓTTIR

FARMERS MARKET

LAUF

FUZZY KOLLURINN

KALDA

AS WE GROW


ANÍTA HIRLEKAR

LESIÐ LÍKA: KLÆÐUMST ÍSLENSKU Á ÁRAMÓTUNUM

Trendnet hefur frá stofnun talað mikið um íslenska hönnun á miðlinum og lagt sitt að mörkum við færa hana nær lesendum. Við fögnum svona herferð og höldum svo sannalega með okkar hæfileikafólki á sviði fata og vöruhönnunar hérlendis. Veljum íslenskt, áfram Ísland! Takk fyrir þetta Epal og Eyjólfur.

//
TRENDNET

Taktu bleika æfingu með góða samvisku

Skrifa Innlegg