fbpx

TRENDNÝTT

Lindex opnar á Egilsstöðum

KYNNING

Lindex heldur áfram að bæta við verslanir sínar á Íslandi.

Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja verslun í miðbæ Egilsstaða nú í haust.  Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður Evrópu með um 500 verslanir í 18 löndum. Lindex býður upp á tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti sem og fatnað á börn og unglinga á hagkvæmu verði.  

 

Verslunin verður staðsett við hlið Bónus í Miðvangi, aðalverslunarkjarna miðbæ Egilsstaða og mun bjóða upp á allar þrjár meginvörulínur Lindex auk þess sem boðið verður upp á nýjustu tækni við verslunina eins og 70 tommu snertiskjái við mátunarklefa til að undirstrika einstaka verslunarupplifun.   Framkvæmdir eru þegar hafnar við nýju verslunina og er opnun áætluð á næstu misserum, í síðasta lagi í september. 

 Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á Lindex sem hefur hvatt okkur áfram í að finna stað fyrir verslun okkar hér. Við teljum því einstakt að koma og festa rætur hér á Austurlandi með verslun sem Austlendingar geta kallað sína eigin.  Við erum því full tilhlökkunar að koma austur og fagna opnuninni.segir Lóa D. Kristjánsdóttir, umboðsaðili Lindex á Íslandi.

Verslunin, sem telur tæplega 300 fm., mun innihalda allar meginvörulínur Lindex.  Barnadeildin mun m.a. bjóða upp á ungbarnafatnað sem einungis er framleiddur með lífrænni bómull, barnafatnað og unglingafatnað upp í stærðir 170.  Einstök  undirfatalína Lindex býður Bravolution brjóstahaldara tæknina sem auðveldar og sparar tíma við verslun undirfatnaðar.  Dömudeildin mun m.a. innihalda gallabuxur framleiddar með Better Denim sem minnkar vatnsnotkun um 85% frá hefðbundnum framleiðsluaðferðum. 

Til hamingju Lindex.
Austurland, látið ykkur hlakka til.

//
TRENDNET

BRAD & JEN - LÚKK AÐ LEIKA EFTIR

Skrifa Innlegg