Menningarnótt!
Ég er búin að taka saman helstu atburði sem mig langar að kíkja á. Þeir eru mismunandi en allir mjög spennandi! Hvet ykkur til þess að taka rölt í bænum og kíkja á einhverja skemmtilega atburði en hér er minn óskalisti:
MUCHO GRANDI
Mucho Grandi er fjöllistahátíð sem mun eiga sér stað í húsalengju við Hólmaslóð á Grandasvæði Reykjavíkur. Hátíðin er samstarfsverkefni Festivalls, Regla hins öfuga pýramída, Skiltamálun Reykjavíkur og Járnbrautar. Rýmin í húsalengjunni eru vinnustofur listamanna megnið af árinu en þau ætla að opna dyr sínar, færa fróðleik og skemmta öllu áhugafólki um menningarlegt lífríki Grandans þennan dag. Meira HÉR
UNDUR/PHENOMENA
David Young sýnir myndverkið PHENOMENA & Esther Ír sýnir UNDUR vörur fyrir heimilið. Verkin verða sýnd í versluninni NOLAND á Laugavegi 12. Meira HÉR
Menningarnótt Bar 11 og X-977
Bar 11 og Xið 977 kynna í samvinnu við Tuborg. Hinn árlega stórviðburð í portinu á Bar 11 frá klukkan 14.00-23.00. Fram koma: Reykjavíkurdætur, Agent Fresco, Kaleo, Úlfur Úlfur, Emmsjé Gauti og fl. Meira HÉR
OPNUNARHÓF CREATE MAGAZINE
Vefsíðan Create Visual hefur verið í loftinu frá byrjun júlí en á henni má finna myndbönd um íslenska jaðarmenningu, svo sem hjólabretti, götulist, tónlist og margt fleira. Það koma um 2 ný myndbönd á vefsíðuna á viku og er lagt upp úr að heimasíðan sé einföld og aðgengileg. 23. ágúst mun veftímaritið Create Magazine bætast við heimasíðuna og er skilgreiningin á innihaldi þess: Menning í víðara samhengi. Meira HÉR
dj. flugvél og geimskip á Menningarnótt
dj. flugvél og geimskip hefur dagskránna í Mengi á Menningarnótt. dj. flugvél og geimskip býr til hressandi hryllings- & geim-raftónlist. Tónlistin er blanda af fjörugum töktum, cool bassa og söng. Lögin fjalla um furður alheimsins og óendanleika geimsins. Meðal áhrifavalda eru Joe Meek, Raymond Scott, Suicide og Sumio Shiratori. Meira HÉR
Vök í Landsbankanum
Hljómsveitin Vök sem bar sigur úr býtum í Músiktilraunum 2013 mætir á svið kl. 17.00 á Menningarnótt í Landsbankanum í Austurstræti.
Það er líkar fullt af öðru spennandi að gerast í bænum, t.d. margar fatasölur, listasýningar, matarkynningar, tónlistaratriði og fleira. Svo er Tónaflóð í kvöld, Menningarnæturtónleikar Rásar 2 á Arnarhóli. Allir í bæinn!!
//Irena
Skrifa Innlegg