fbpx

DETAILS

LANGAR ÍLJÓSMYNDIRNÝTT

Gleðilegt nýtt ár x
Í tilefni þess að ég er farin að vera meira með skartgripi núna undanfarið heldur en ég gerði ætla ég að sýna ykkur brot af mínum.

Ég er mikið fyrir það að vera með marga hringi og tók mig loksins til og föndraði tvo kristalahringi. Ég á það til að týna hringjum þannig ég kaupi oftast auka pakka af einföldum hringjum þegar ég fer í H&M – ódýrir og fínir.

Ég keypti þessa kristala á lyklakippu í Urban Outfitters, tók þá af og setti á band sem ég keypti í föndurbúð – er mjög sátt með útkomuna.

Ég fékk þetta vinstra megin í jólagjöf og mig dreymir líka um þetta hægra megin – fyrra er úr Nostalgíu og seinna frá Romwe.


Við systurnar fórum í myndatöku fyrir Spúútnik – Saga Sig tók myndirnar. Það er mikið úrval af fallegum skartgripum þar.

Ég er sérstaklega hrifin af hringunum á fyrstu myndinni og bak-menunum.
xxx

//Karin

 

AUGA

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Emilía

    4. January 2015

    vá fallegt! hvernig gerðiru hringana? :)

    • Sveinsdætur

      5. January 2015

      Þú getur keypt hringa í föndurbúð og steina/kristala í Gjafir Jarðar á laugaveginum, ég notaði lím en þú getur líka notað vír og vafið utan um.
      :) x