Þar sem haustið er nú meira og minna búið og veturinn genginn í garð þá get ég eiginlega ekki verið með Hausttrend póstana mína lengur(póstaði heilum 3 trendum, þvílíkur metnaður). En í staðinn ætla ég að vera með einhvers konar framhald af því og skrifa um áberandi tískustrauma vetrarins eða hreinlega trend sem mér persónulega þykir fallegt.
Við þurfum ekki að forðast hvítt þó að sólin sé í dvala, þvert á móti. Hvíti liturinn verður áberandi í vetur og um að gera að klæðast nokkrum lögum af hvítum flíkum. Frá toppi til táar..
Sjálf hef ég verið að vinna aðeins með hvítar buxur í haust, djarft, ég veit.. en mikið ofboðslega vantar mig hlýja og góða hvíta ullarkápu. Klárlega á desember óskalistanum í ár!
..
This year, there’s no such thing as not wearing white after labor day.. Go for an elegant winter look with white layering from head to toe. A warm white wool coat is with out a doubt on my december wish list!
Pics VIA PINTEREST
PATTRA
Skrifa Innlegg