fbpx

TACO MEÐ HUMRI & BEIKONI

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Þetta mjög svo ljúffenga og jólalega lúxus taco gerði ég í samstarf við Innnes. Taco með humri, beikoni, rauðkáli, Philadelphia rjómaosti, tómötum, hvítlauks-og steinseljusósu og toppað með granateplafræum. Svo bragðgóð og einföld uppkrift sem er tilvalið útbúa núna á aðventunni. Ég prófaði að þessu sinni nýjar tortillur frá Mission sem eru strax komnar í uppáhald hjá mér. Litlar og dásamlega góðar og henta mjög vel í svona taco rétti.

Uppskrift að 6-8 tacos
330 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (1 pakkning)
1 msk ólífuolía
4 msk steinselja, smátt söxuð
1 hvítlauksrif, pressað eða rifið
Salt & pipar
Chili flögur
1 msk smjör
8-10 beikonsneiðar
6-8 Street taco frá Mission
Philadelphia rjómaostur eftir smekk
4-6 kokteiltómatar, smátt skornir
4-5 dl rauðkál
Granatepli eftir smekk

Sósa
4 msk Heinz majónes
2 msk sýrður rjómi
½ hvítlauksrif, pressað eða rifið
3 msk steinselja, smátt skorin
Safi úr ½ sítrónu
Salt & pipar
Aðferð

  1. Blandið saman í skál humri, ólífuolíu, steinselju, hvítlauk, chili flögum, salti og pipar. Leyfið þessu að liggja saman á meðan þið undirbúið meðlætið.
  2. Skerið rauðkál og tómata smátt og fjarlægið fræin úr granateplinu.
  3. Útbúið sósuna. Hærið saman í skál majónesi, sýrðum rjóma, hvítlauk, steinselju, sítrónusafa, salti og pipar.
  4. Leggið beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til það er orðinn vel stökkt. Skerið beikonið smátt.
  5. Steikið humarinn uppúr smjöri. Það tekur aðeins örfáar mínútur fyrir humarinn að eldast.
  6. Steikið tortillurnar upp úr smá olíu þar til þær verða örlítið stökkar. Tekur litla stund. Þið getið líka bakað þær í ofni en þá er gott að bera smá ólífuolíu á þær.
  7. Smyrjið þær með rjómaosti eftir smekk. Því næst raðið þið rauðkáli í botninn, tómötum, humri, beikoni, sósunni og dreifið granateplafræjunum yfir. Njótið!

Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU !

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

SMØRREBRØD MEÐ RAUÐSPRETTU, RAUÐKÁLI OG HEIMAGERÐU REMÚLAÐI

Skrifa Innlegg