Þetta mjög svo ljúffenga og jólalega lúxus taco gerði ég í samstarf við Innnes. Taco með humri, beikoni, rauðkáli, Philadelphia rjómaosti, tómötum, hvítlauks-og steinseljusósu og toppað með granateplafræum. Svo bragðgóð og einföld uppkrift sem er tilvalið útbúa núna á aðventunni. Ég prófaði að þessu sinni nýjar tortillur frá Mission sem eru strax komnar í uppáhald hjá mér. Litlar og dásamlega góðar og henta mjög vel í svona taco rétti.
Uppskrift að 6-8 tacos
330 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (1 pakkning)
1 msk ólífuolía
4 msk steinselja, smátt söxuð
1 hvítlauksrif, pressað eða rifið
Salt & pipar
Chili flögur
1 msk smjör
8-10 beikonsneiðar
6-8 Street taco frá Mission
Philadelphia rjómaostur eftir smekk
4-6 kokteiltómatar, smátt skornir
4-5 dl rauðkál
Granatepli eftir smekk
Sósa
4 msk Heinz majónes
2 msk sýrður rjómi
½ hvítlauksrif, pressað eða rifið
3 msk steinselja, smátt skorin
Safi úr ½ sítrónu
Salt & pipar
Aðferð
- Blandið saman í skál humri, ólífuolíu, steinselju, hvítlauk, chili flögum, salti og pipar. Leyfið þessu að liggja saman á meðan þið undirbúið meðlætið.
- Skerið rauðkál og tómata smátt og fjarlægið fræin úr granateplinu.
- Útbúið sósuna. Hærið saman í skál majónesi, sýrðum rjóma, hvítlauk, steinselju, sítrónusafa, salti og pipar.
- Leggið beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til það er orðinn vel stökkt. Skerið beikonið smátt.
- Steikið humarinn uppúr smjöri. Það tekur aðeins örfáar mínútur fyrir humarinn að eldast.
- Steikið tortillurnar upp úr smá olíu þar til þær verða örlítið stökkar. Tekur litla stund. Þið getið líka bakað þær í ofni en þá er gott að bera smá ólífuolíu á þær.
- Smyrjið þær með rjómaosti eftir smekk. Því næst raðið þið rauðkáli í botninn, tómötum, humri, beikoni, sósunni og dreifið granateplafræjunum yfir. Njótið!
Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU !
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg