Taco með kjúklingi í buffalo sósu, hvítkáli, guacamole og gráðostasósu klikkar ekki! Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi buffalo- og gráðostasósu og uppáhaldið mitt er taco. Þessi blanda er bara svo góð. Ég gerði þessa uppskrift fyrir nokkru síðan og vá hvað hún sló í gegn! Ég átti til afgang af heilum kjúkling frá því daginn áður og nýtti ég hann í þennan rétt. Mér finnst frábært að útbúa kvöldmat sem hægt er að nýta í annan rétt daginn eftir. Það skiptir mig miklu máli að nýta matinn vel og mér finnst mikilvægt að minnka matarsóun. Ég sýndi frá þessu á Instagram og fékk mjög góðar undirtektir, margir báðu um uppskrift og hér kemur hún loksins!
Mæli með þremur taco á mann
Rifinn kjúklingur (ég notaði restina af heilum kjúklingi sem við vorum með daginn áður)
Franks hot sauce buffalo
Litlar tortillur, soft tacos (fæst t.d. í Hagkaup)
Hvítkál, skorið í þunnar ræmur
Gráðostasósa
20-30 g stappaður gráðostur
3 msk majónes
2 msk sýrður rjómi
Safi úr ½ lime
Salt & pipar
Guacamole
3 avókadó
Safi úr 1 lime
1-2 msk kóríander, smátt skorið
Chiliflögur
Salt og pipar
2 tómatar, smátt skornir
2 msk rauðlaukur, smátt skorinn
Aðferð
- Byrjið á því að útbúa guacamole. Stappið saman avókadó, safa úr lime, kóríander, chiliflögur, salt og pipar. Blandið svo tómötum og rauðlauk saman við með skeið.
- Því næst útbúið gráðostasósuna. Blandið saman stöppuðum gráðosti, majónesi, sýrðum rjóma, safa úr lime, salti og pipar í skál.
- Skerið hvítkál í þunnar ræmur.
- Blandið saman rifnum kjúklingi og buffalo sósu. Dreifið honum í eldfast form eða á bökunarplötu þöktum bökunarpappír.
- Bakið í ofni í 10 mín við 190°C eða þar til kjúklingurinn er orðinn heitur.
- Steikið tortillurnar upp úr smá olíu þar til þær verða örlítið stökkar. Tekur litla stund.
- Raðið hvítkáli í botninn á tortillunum, guacamole, kjúklingnum og svo sósunni. Svo er bæði gott og fallegt að toppa taco-in með ferskum kóríander.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU!
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg