fbpx

ÓMÓTSTÆÐILEGAR AVÓKADÓ VORRÚLLUR

FORRÉTTIR & LÉTTIR RÉTTIRGRÆNMETIS- & VEGANRÉTTIRUPPSKRIFTIR

Það eru örugglega fleiri en ég sem elska „avocado eggroll“ á Cheesecake factory í Bandaríkjunum. En sá réttur er fyrirmyndin af þessari uppskrift. Vorrúllur fylltar með avókadó, tómötum, kóíander og blaðlauki bornar fram með gómsætri . Það er svo lítið mál að gera þetta og ég mæli með að þið prófið. Þetta er ótrúlega gott!

Uppskrift gerir 6 vorrúllur
2 stór avókado (eða 3 lítil avókadó)
1-2 tómatar
2 msk kóríander
3 msk blaðlaukur
Safi úr ½ lime
Chili flögur
Salt og pipar
Egg
2 dl olía (ég notaði steikingarolíuna frá Olifa)
Fílódeig (Fæst tilbúið og frosið í t.d. Hagkaup)

Kóríander sósa
3 msk sýrður rjómi
1 msk majónes
3 msk kóríander
Safi úr ½ lime
½ tsk limebörkur
Salt og pipar
Smá hvítlauksduft

  1. Stappið avókadóið gróflega með kartöflustappara eða notið annað áhald til að stappa.
  2. Skerið tómatana, kóríander og blaðlauk smátt og hrærið saman við avókadóið. Kreistið safa úr lime og kryddið með salti, pipar og chili flögum.
  3. Skerið fílódeigið í 6 ferninga. Ein plata af deiginu gerir 2 skammta.
  4. Dreifið avókadóstöppunni jafnt í miðjuna á öllum skömmtunum.
  5. Pískið egg og penslið hornin á deiginu.
  6. Pakkið deiginu saman eins og umslagi og myndið úr því 6 rúllur. Farið varlega af því að deigið er viðkvæmt. Ef það kemur gat á deigið þá er gott að taka bút af deiginu, bleyta það með egginu og setja yfir gatið.
  7. Hitið olíuna í háum potti.
  8. Steikið vorrúllurnar upp úr olíunni þangað til að þær verða gylltar og stökkar. Passið að olían sé orðin vel heit. Mér finnst gott að dýfa viðarskapti á skeið í olíuna og þegar hún er orðin heit þá bullsýður viðurinn.
  9. Skerið vorrúllurnar í tvennt, berið fram með kóríander sósunni og njótið.

Kóríander sósa

  1. Saxið kóranderinn smátt og blandið öllum hráefnunum saman í skál. Berið fram með vorrúllunum.

Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & GÓÐA HELGI!

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

HELGARKOKTEILLINN: ÁSTARALDIN & VANILLU GIN

Skrifa Innlegg