Það eru örugglega fleiri en ég sem elska „avocado eggroll“ á Cheesecake factory í Bandaríkjunum. En sá réttur er fyrirmyndin af þessari uppskrift. Vorrúllur fylltar með avókadó, tómötum, kóíander og blaðlauki bornar fram með gómsætri . Það er svo lítið mál að gera þetta og ég mæli með að þið prófið. Þetta er ótrúlega gott!
Uppskrift gerir 6 vorrúllur
2 stór avókado (eða 3 lítil avókadó)
1-2 tómatar
2 msk kóríander
3 msk blaðlaukur
Safi úr ½ lime
Chili flögur
Salt og pipar
Egg
2 dl olía (ég notaði steikingarolíuna frá Olifa)
Fílódeig (Fæst tilbúið og frosið í t.d. Hagkaup)
Kóríander sósa
3 msk sýrður rjómi
1 msk majónes
3 msk kóríander
Safi úr ½ lime
½ tsk limebörkur
Salt og pipar
Smá hvítlauksduft
- Stappið avókadóið gróflega með kartöflustappara eða notið annað áhald til að stappa.
- Skerið tómatana, kóríander og blaðlauk smátt og hrærið saman við avókadóið. Kreistið safa úr lime og kryddið með salti, pipar og chili flögum.
- Skerið fílódeigið í 6 ferninga. Ein plata af deiginu gerir 2 skammta.
- Dreifið avókadóstöppunni jafnt í miðjuna á öllum skömmtunum.
- Pískið egg og penslið hornin á deiginu.
- Pakkið deiginu saman eins og umslagi og myndið úr því 6 rúllur. Farið varlega af því að deigið er viðkvæmt. Ef það kemur gat á deigið þá er gott að taka bút af deiginu, bleyta það með egginu og setja yfir gatið.
- Hitið olíuna í háum potti.
- Steikið vorrúllurnar upp úr olíunni þangað til að þær verða gylltar og stökkar. Passið að olían sé orðin vel heit. Mér finnst gott að dýfa viðarskapti á skeið í olíuna og þegar hún er orðin heit þá bullsýður viðurinn.
- Skerið vorrúllurnar í tvennt, berið fram með kóríander sósunni og njótið.
Kóríander sósa
- Saxið kóranderinn smátt og blandið öllum hráefnunum saman í skál. Berið fram með vorrúllunum.
Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & GÓÐA HELGI!
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg