fbpx

OFNBAKAÐAR TORTILLARÚLLUR

AÐALRÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIRVEISLUR

Nýr réttur sem sló alveg í gegn á heimilinu. Ljúffengar tortillarúllur fylltar með nautahakki, osti, sýrðum rjóma og tómötum bakaðar inn í ofni og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Þessa uppskrift útbjó í samstarfi við Innnes og er þetta skemmtilegt twist á annars klassískum rétti. Mjög barnvænn og gómsætur.

Fyrir  3-4
500 g nautahakk
Krydd: 1 tsk salt, ¼ tsk chili duft, ½ tsk cumin, ½ tsk reykt paprika, ½ tsk laukduft
1 pkn original tortilla frá Mission (fæst t.d. í Krónunni og Fjarðarkaup)
1 laukur
2-3 hvítlauksrif, pressuð eða rifin
1 salsa sósa frá Mission
Sýrður rjómi
4 tómatar, smátt skornir og fræhreinsaðir
6 ½ dl rifinn cheddar ostur
1 dl rifinn mozzarella ostur

Aðferð

  1. Byrjið á því að steikja lauk og hvítlauk upp úr ólífuolíu. Bætið nautahakki saman við og kryddið.Hellið svo salsa sósunni út í og hrærið vel saman.
  2. Smyrjið hverja tortillu með 2 tsk sýrðum rjóma, dreifið rúmlega 1 dl af nautahakki yfir, stráið ½ dl cheddar osti yfir og 1-2 tsk af tómötum.
  3. Rúllið tortillunum upp og skerið svo í fjóra bita.
  4. Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu og dreifið tortillarúllunum ofan í.
  5. Dreifið mozzarella og cheddar osti og restinni af tómötunum yfir.
  6. Bakið í 8-10 mínútur við 190°C.
  7. Stráið kóríander yfir eftir smekk og berið fram með heimagerðu guacamole og sýrðum rjóma. Njótið.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ DAGSINS! 

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

FYLLT GRASKER MEÐ KJÚKLINGABAUNUM & KÍNÓA

Skrifa Innlegg