Ostakaka með TUC kexi og Milka toffee creme súkkulaði sem ég gerði í samstarfi með Innnes. Þessi ostakaka er brjálæðislega ljúffeng og auðveld í undirbúningi. Fullkominn eftirréttur sem gott er að gera með smá fyrirvara, geyma í ísskápnum og skella ferskum berjum ofan á þegar það á bera þetta fram.
Fyrir 4-6
1 pakkning Tuc kex
100 g brætt smjör
2 ½ dl rjómi
200 g Philadelphia rjómaostur
2 msk flórsykur
100 g Milka toffee creme
2 msk rjómi
Fersk ber
Aðferð:
- Bræðið Milka toffee creme í potti ásamt 2 msk rjóma og blandið saman. Takið til hliðar og látið kólna.
- Bræðið smjörið. Myljið Tuc kexið í matvinnsluvél og hrærið saman við smjörið.
- Dreifið blöndunni í falleg glös.
- Setjið í kæli á meðan þið gerið rjómaostablönduna.
- Hrærið saman rjómaosti og flórsykri. Hellið Milka súkkulaðinu saman við og hrærið.
- Þeytið rjóma og blandið saman við rjómaostablönduna.
- Dreifið blönduna ofan á tuc kexið og kælið.
- Toppið kökuna með berjum og Milka toffee creme mulningi.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU OG GÓÐA HELGI! :)
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg