fbpx

LITLAR DÖÐLUKÖKUR MEÐ KARAMELLUSÓSU: MYNDBAND

EFTIRRÉTTIR & KÖKURSAMSTARFUPPSKRIFTAMYNDBÖNDUPPSKRIFTIR

Þessar dásamlegu döðlukökur eru einn af mínum uppáhalds eftirréttum en uppskriftina útbjó ég í samstarfi við Innnes. Kökurnar eru vinsæll eftirréttur á Englandi þar sem þær kallast Sticky toffee pudding en þær eru svo mjúkar og djúsí að þær bráðna upp í manni. Þær eru svo bornar fram með himneskri karamellusósu úr Werther’s karamellum. Passar vel sem eftirréttur yfir hátíðarnar eða bara hvenær sem er. Svooo gott! 

Uppskrift gerir 12 litlar kökur
250 g döðlur
3 dl vatn
1 tsk matasódi
1 ½ dl púðursykur
2 egg
100 g smjör við stofuhita
3 dl hveiti
2 tsk lyftiduft
½ tsk salt
Pam sprey
Cadburys kakó
1 poki Wearthers rjómakaramellur
1 dl rjómi

Berið fram með ís eða þeyttum rjóma. 

Aðferð

  1. Setjið döðlur og vatn í pott og hitið þar til vatnið byrjar að sjóða. Slökkvið á hellunni og leyfið þessu að standa í 5-10 mínútur,
  2. Maukið saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
  3. Blandið smjör, sykur og egg saman í hrærivél.
  4. Sigtið hveiti, lyftiduft og salt út í blönduna og hrærið.
  5. Bætið svo döðlunum saman við og hrærið.
  6. Spreyið form með Pam spreyi og stráið kakói yfir í gegnum sigti.
  7. Dreifið í muffinsformin og bakið í 25 mínútur við 180°C.
  8. Á meðan kökurnar bakast er gott að útbúa karamellusósuna. Bræðið karamellurnar saman við rjómann og blandið vel saman.
  9. Berið kökurnar fram með karamellusósunni, ís eða rjóma.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ!♥

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

 

UPPÁHALDS HNÍFARNIR MÍNIR: TOJIRO

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

Skilaboð 1

  1. Halla

    10. January 2022

    Mjög góðat döðlukökur. Efirréttur á gamlárskvöld. Takk fyrir.