Halló langþráða helgarfrí! Helgarkokteillinn er svo sannarlega ekki af verri endanum. Haustlegur kokteill sem yljar manni, afar ljúffengur og minnir aðeins á jólin. Heitur kaffidrykkur með Stroh, flóaðri mjólk, pumpkin spice, hrásykri og toppaður með þeyttum rjóma. Ég ætla klárlega að skála í þessum drykk um helgina.
Fyrir einn
1 espresso skot kaffi eða ½ dl sterkt kaffi
1 msk hrásykur
¼ tsk pumpkin spice + auka til að skreyta
2-4 cl Stroh 60
1 dl flóuð mjólk
Þeyttur rjómi
Pumpkin spice kryddblanda
2 tsk kanill
½ tsk múskat
½ tsk malaður negull
½ tsk malað engifer
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa pumpkin spice kryddblönduna. Blandið öllum hráefnunum saman í skál eða krukku. Gott að geyma svo í krukku upp í skáp til að eiga. Mér finnst t.d. gott að strá smá pumpkin spice út í kaffið eða útbúa haustlegt hnetumix.
- Blandið saman heitu kaffi, hrásykri og pumpkin spice í bolla eða glas. Hrærið vel saman þar til sykurinn leysist upp.
- Hellið Stroh saman við og hrærið.
- Hitið mjólkina í potti eða í mjólkurflóara, hellið saman við kaffiblönduna og hrærið.
- Að lokum toppið kokteilinn með þeyttum rjóma, stráið pumpkin spice yfir og njótið!
Mér finnst alltaf gaman að heyra frá ykkur ef að þið prófið! ;)
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & GÓÐA HELGI!
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg