fbpx

BRUSCHETTUR MEÐ RJÓMAOSTI OG OFNBÖKUÐUM TÓMÖTUM

FORRÉTTIR & LÉTTIR RÉTTIRSAMSTARFUPPSKRIFTIR

Dásamlegur forréttur sem ég útbjó í samstarfi við Innnes. Ristaðar bruschettur með hvítlauks-og kryddjurta rjómaosti frá Philadelphia, ofnbökuðum kokteiltómötum og ferskum kryddjurtum. Nammi! Svo ótrúlega bragðgott og ljúft með köldu hvítvínsglasi. Ekta til þess að bera fram í matarboðum, saumaklúbbshittingum eða sem meðlæti með góðu pasta.

1 baguette brauð, ég keypti súrdeigs
Philadelphia rjómaostur með hvítlauk
1 dl ólífuolía + 1 msk ólífuolía
3 hvítlauksrif
200-250 g kokteiltómatar
2 msk ferskt oregano, smátt skorið
2 msk fersk basilika, smátt skorið
Salt & pipar

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera baguette brauð í sneiðar. Leggið sneiðarnar á bökunarplötu þakta bökunarpappír. 
  2. Blandið saman 1 dl ólífuolíu og tveimur pressuðum hvítlauksrifjum saman í litla skál.
  3. Penslið brauðið með hvítlauksolíunni.
  4. Skerið tómatana í bita og blandið saman við 1 msk ólífuolíu, 1 pressað hvítlauksrif, oregano, basiliku, salti og pipar. Dreifið þeim í lítið eldfast mót.
  5. Bakið brauðið og tómatana í ca. 10 mínútur við 190°C.
  6. Smyrjið brauðsneiðarnar með rjómaostinum og dreifið tómötunum yfir. Gott að strá ferskum kryddjurtum yfir og njóta.

VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ VEL! 

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

FERSKT KJÚKLINGASALAT MEÐ JARÐABERJUM & PARMESAN

Skrifa Innlegg