Mig hefur alltaf langað til að baka blúndur og ég lét loksins verða að því í samstarfi við Innnes. Þessar eru með smá tvisti og ó vá hvað þær eru ljúffengar! Samlokur úr þunnum og stökkum haframjölssmákökum með súkkulaði smjörkremi á milli. Ég notaði Nusica súkkulaðismjör í kremið og það gefur svo gott bragð. Innblásturinn að uppskriftinni eru margar uppskriftir sem ég skoðaði bæði í uppskriftabókum og á netinu og þetta var útkoman. Dásamlega gott!
150 g smjör
6 dl haframjöl
2 egg
2,5 dl sykur
2,5 msk hveiti
1 tsk vanilludropar
1 tsk lyftiduft
Krem
170 g smjör
250 g flórsykur
1 lítið egg
200 g Nucia súkkulaðismjör
100 g dökkt súkkulaði
Aðferð
- Bræðið smjör og blandið saman við haframjölið.
- Þeytið í hrærivél egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.
- Blandið smjörinu og haframjölinu saman við ásamt hveiti, vanilludropum og lyftidufti.
- Útbúið kúlur með ½-1 tsk af deiginu og dreifið á plötu þakta bökunarpappír. Passið að hafa gott bol á milli þar sem deigið dreifir úr sér.
- Bakið í 6-8 mínútur við 180°C eða þar til kökurnar eru orðnar gylltar og stökkar.
- Blandið öllum hráefnunum fyrir kremið saman í hrærivél og hrærið vel saman.
- Dreifið kreminu með sprautupoka á helminginn af kökunum og lokið kökunum með hinum helmingnum.
- Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og dreifið yfir kökurnar eftir smekk. Mæli með að geyma kökurnar í frysti og njótið vel.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg