Góðan daginn! Við litla fjölskyldan erum tiltölulega nýkomin úr fríi í Florida. Við eyddum þar 10 dögum með frábærum vinum okkar. Við leigðum saman hús í Kissimmee í Florida sem var alveg meiriháttar. Stórt og rúmgott og vel fór um alla sem var lykilatriði. Frábær sundlaug í garðinum og stutt í alla helstu afþreyingu fyrir börnin, sem var einmitt ætlunin með fríinu. Það var nýfarið að kólna verulega hér á klakanum þegar við fórum út svo tímasetningin var fullkomin fyrir frí. Við vorum í 10 daga yfir mánaðarmótin október – nóvember. Það var 30 stiga hiti allan tímann sem var dásamlegt en sólin hefði hinsvegar alveg mátt skína meira á okkur seinni helming ferðarinnar! Engu að síður frábært frí í alla staði og meiriháttar að komast í frí með Kolbrúnu Önnu. Það var komið full langt síðan síðast! Hún naut sín í botn með vinkonum sínum sem var svo gott í hjartað að sjá! Ég ætla að leyfa fullt af myndum að fylgja þessari færslu – er ekki alveg í lagi að setja smá sólarmyndir inn í nóvember?
Fyrsti dagurinn, rölt um garðinn og fallega hverfið okkar.
Áttum svo dásamlegar stundir í sundlaugargarðinum í hverfinu okkar. Ótrúlega barnvænn garður svo þetta var hin mesta skemmtun og þægindi fyrir alla! <3
Krúttlegasta samkoman. <3 Fjölskyldan í Disney Springs.
Elsku litla mömmu músin mín <3 Ósvikin gleði hjá litlum sundgarpi. <3
Vægast sagt góðir tímar sem við áttum í garðinum okkar.
Litlar vinkonur <3 Fyrsta og eina fjölskyldu-myndatakan áður en við fórum á sædýrasafn og út að borða. <3
Algjörlega ógleymanleg ferð með þessum bestu vinkonum mínum og fjölskyldum þeirra. <3 Og að sjálfsögðu þessum tveimur uppáhöldum. <3
Smá sól í hjarta úr kuldanum.
Þangað til næst,
Xxx Fanney
Instagram: fanneyingvars
Skrifa Innlegg