VINKONU BÚSTAÐUR
Við stelpurnar fórum saman í vinkonubústað hér í kjósinni & áttum svo æðislegan dag!
Við vorum 9 saman en það fyndna var að við vorum í raun 12 af því að hér voru sko þrjár óléttar skvísur. Ég er svo ólýsanlega þakklát fyrir þennan hóp <3 það er svo gaman að geta verið samferða þeim & vita það að ég geti alltaf leitað til þeirra ef það er eitthvað.
SJÓNVARPSKAKA
Ég & Hera mættum aðeins fyrr til þess að baka þessa ljúffengu sjónvarpsköku sem beið stelpnanna þegar þær komu … ég held ég hafi bara aldrei smakkað eins góða sjónvarpsköku þó ég segi sjálf frá. Uppskriftina er hægt að finna hér hjá henni Hildi Rut.
(hún kláraðist & ég er bara hálfleið af því að mig langar í sneið núna… ?)
PIZZA FRIDAY
Pizza á föstudegi … en ekki hvað??
GÓÐAN DAGINN
Það er hvergi betra að byrja daginn en hér í kjósinni. Ég svaf líka ÚT & alveg til hálf 12 sem hefur ekki gerst mjög lengi, ég hefði jafnvel geta sofið lengur þar sem stelpurnar vöktu mig ? … þreytta óletta Arna ??
Takk fyrir að lesa & njóttu nú helgarinnar kæri lesandi & ekki gleyma að horfa á myndbandið sem kemur inn á morgunn á YouTube sem verður um viðbrögðin mín & Tómasar þegar við komumst að því að ég væri ólétt.
KNÚS,
Skrifa Innlegg