SUNNUDAGS KÓSÝ
Ég elska svona rigninga sunnudaga …
Náttfatadagurinn góði, heitt croissant, gott kaffi, smá skrif hér á blogginu, YouTube áhorf & fjölskyldukósý. Það er hinn fullkomni sunnudagur fyrir mér.
Náttföt: Noomi (þau eru á afslætti núna sá ég)
Skart: Mjöll
Það sem er svo gott við rigninga sunnudaga er það að maður fær ekki samviskubit yfir því að vera inni allan daginn eða allavega ekki ég. Tómas er aðeins minni kósýkall þannig hann er líklegur til að fara út & taka til í garðinum eða eitthvað í þá áttina
Á BAKVIÐ TJÖLDIN
Svo var ég að pósta nýju myndbandi í morgunn á YouTube. Myndbandið er VLOG & ég sýni frá deginum þegar tekið var viðtal við okkur í Ísland í dag … þetta er svona á bakvið tjöldin. Þú finnur myndbandið hér fyrir neðan
🦦🤎
Annars þá langaði mig bara til að senda ykkur góða strauma hér á blogginu. Eigið góðan kósý sunnudag & leyfið ykkur að gera ekki neitt. Það er svo gott stundum, þá fer maður líka eldhress inn í vikuna.
Instagram: arnapetra
YouTube: Arna Petra
Skrifa Innlegg