fbpx

FLOTT BIKINÍ FYRIR SUMARIÐ?

2021

Dagurinn í gær var sólríkur & fallegur hér á klakanum. Emilía ákvað að sofa lengi & leyfa mömmu sinni að sóla sig aðeins. Ég nældi mér í auka freknur & sólsting. Ég veit ekki hvort ég sé ein um það en ég var alveg búin á því eftir sólina í gær 😅 eða mögulega búin á því eftir svefnlausa nótt.

Ég fékk þó margar spurningar um bikiníið mitt sem ég er í á nýjustu mynd á IG. En ég keypti það fyrir mörgum árum á ASOS & það er orðið ansi sjúskað. Hér fann ég svipað. En mig sárvantar nýtt & greinilega fleirum hér á Íslandinu góða.

Ég keypti mér nefnilega á netinu fyrir um það bil mánuði síðan & það er ekki fræðilegur að ég fari í það. Brækurnar náðu upp á brjóstkassa & pokaði á rassinum?? & toppurinn var nokkrum stærðum of lítill. Þetta var ekki happy internet shopping verð ég að segja.

… & þá langar mig að spurja ykkur sem leynið á góðum bikiní TIPSUM – hvar fær maður flott bikiní fyrir sumarið?? 🌞🏖👙

Fyrirfram þakkir,

OUTFIT - DATE NIGHT

Skrifa Innlegg