Hæ frá Baltimore
Ég verð að viðurkenna að ég var tekin á teppið þegar ég mætti. Ég var spurð af alls konar spurningum & einhvernvegin átti ég erfitt með að svara þeim. Enskan ákvað að fara í felur & ég fann ekki stakt orð.
Mér finnst það svosem ekkert skrítið þar sem maðurinn horfði það alvarlega í augun á mér að mér leið eins & ég væri að fela eitthvað. Sem ég var auðvitað ekki Hvernig er maður ekki stressaður segi ég nú bara haha?? Ég þarf að fara að æfa mig að ferðast til bandaríkjanna. Ég hef lent í þessu áður þannig að þetta kom svosem ekkert á óvart. Bara ogguponsulítið PANIKK!
Hotel: Canopy
Við Tómas ákváðum að hoppa til USA sem var algjör skyndiákvörðun. Við ætlum bara að vera tvær nætur, borða góðan mat & versla smá.
Ég er kannski komin með æði fyrir ískaffi … ég kenni tiktok um það.
Steik á Longorn …
Eruð þið að sjá meðlætið??? & svo engin sósa – hvað er málið með það? Sósukellingin var ekki sátt. Þetta var samt þrusugott.
DRESS:
Skyrta: Camy collection
Buxur: Noomi
Taska: LV
Hárklemma: mjöll
Drykkur á barnum, pool (ég vann) & svo uber eat
IHOP
Ef þið komið til USA þá er must að fara á IHOP en helst bara til þess að fá sér amerískar pönnukökur með old fashioned sýrópi …. SLEF
Shake Shack
Við Tómas erum búin að njóta okkar mikið en á sama tíma söknum við stelpunnar okkar alveg rosalega. Okkur hlakkar núna ennþá meira til þess að ferðast með henni í sumar.
Eigðu góðan dag kæri lesandi,
Skrifa Innlegg