Tískuvikan í Kaupmannahöfn var allt allt öðruvísi í ár eins og allt annað á Covid tímum. Á meðan að borgin er í “lockdown-i” þurftu hönnuðir & fyrirtæki að fara nýjar leiðir. Tískuvikan var öll rafræn í ár, sölufundir, tískusýningar, tónlistaratriði ásamt allskonar viðtölum & viðburðum.
Innkaupafólk um allan heim situr því við skrifborð sennilega í jogginggallanum að panta inn fyrir haustið 2021.
Haust 2021 /FW 21
Herraleg snið, jakkaföt, gervipelsar, ljósir tónar & alpahúfur voru áberandi. Eins mátti sjá sterka liti eins og fjólublátt & grænt en Ditte Reffstrup yfirhönnuður & einn eigandi GANNI sagði að grænn væri litur vonar og þess vegna varð hann sérstaklega fyrir valinu hjá þeim í FW 21 línunni.
Baum und Pferdgarten fengu fyrirsætur um allan heim til að sýna fötin sín í myndbandi sem var svo klippt saman. Línan ber nafnið “The Lockdown show”. Í myndbandinu eru fyrirsæturnar ýmist heima hjá sér eða á mannlausum götum stórborga eins og París & New York. Áhugasamir geta séð sýninguna HÉR.
Hér má sjá brot af því sem koma skal:
Svona var tískuvikan mín…. við eldhúsborðið heima á rafrænum fundum 😒 Öll næsta vika er svo bókuð á fundum og við gerum okkar besta að vinna allt í gegnum netið en ég ætla ekki að ljúga, ég er ekki að elska þetta & hlakka tvöfalt mikið til að fara á næstu tískuviku.
xxx
AndreA
IG @andreamagnus
IG @andreabyandrea
Skrifa Innlegg