Halló frá Spáni ☀️
Sumarfrí & sæla. Við erum búnar að hafa það dásamlega gott á spáni, við mæðgurnar, ég, mamma, Ísabella og vinkona hennar Anna Emilía. Við erum í Orihuela (50min frá Alicante). Við erum búnar að vera duglegar að keyra á mismunandi strendur hér í kring, fara á markaði & borða góðan mat. Eins keyrðum við til Villajoyosa og skoðuðum litríka bæinn en þar eru öll húsin máluð í mismunandi litum. Dásamlega rólegt og gott að ná sér niður eftir annasama tíma. Hvaða dagur er og hvað klukkan er skiptir engu, bara njóta…. love it
xxx
AndreA
Instagram @andreamagnus
Skrifa Innlegg