Hér kemur uppskrift að dásamlegri ídýfu sem er ein sú allra einfaldasta og passar svo vel með Maruud bleika snakkinu með hvítlauk, bjarnarlauk og chili. Tilvalið til að bjóða uppá á gamlárskvöld. Ídýfan inniheldur sýrðan rjóma, krydd og Tabasco Habanero sósu. Gerist ekki einfaldara!
// Ég útbjó uppskriftina í samstarfi við Innnes.
1 dós sýrður rjómi
1 tsk saltflögur
1 tsk laukduft
1/2 tsk hvítlauksduft
1/4 tsk pipar
Tabasco Habanero sósa eftir smekk
Maruud með hvítlauk, bjarnarlauk og chili
Aðferð
- Blandið saman sýrðum rjóma, salti, laukdufti, hvítlauksdufti og pipar.
- Bætið Tabasco Habanero sósu eftir smekk og hrærið saman. Smakkið ykkur til því sósan er mjög sterk.
- Berið fram með Maruud snakki og njótið.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg