Óvá hvað þessar gulrótarbollakökur eru ljúffengar og mér finnst ótrúlegt að þetta sé í fyrsta skipti sem ég prófa að baka slíkar kökur en þessar útbjó ég í samstarfi við Innnes. Kökurnar eru dúnmjúkar að innan og rjómaostakremið er dásamlega gott. Ég toppaði þær síðan með pekanhnetum sem gera kökurnar ennþá betri. Ég bauð í smá kaffi eftir vinnu í gær og bauð nánustu fjölskyldu minni. Allir elskuðu kökurnar og þær kláruðust fljótt. MMM…namm, þetta verður pottþétt aftur á boðstólum á mínu heimili! Þið verðið eiginlega að prófa.
Uppskriftin gerir 12 bollakökur
4 dl rifnar gulrætur
2 egg
1 tsk vanilludropar
1 ½ dl ólífuolía
2 ½ dl hveiti
½ tsk matasódi
½ tsk lyftiduft
¼ tsk salt
1 tsk kanill
¼ tsk engifer, ¼ tsk múskat, ¼ tsk negull
1 dl púðursykur
½ dl sykur
5-7 stk smátt saxaðar pekanhnetur
12 bollakökuform
Rjómaostakrem
110 g smjör við stofuhita
1 pkn Philadelphia rjómaostur
1 tsk vanilludropar
7-8 dl flórykur
Aðferð
- Rífið gulræturnar smátt.
- Pískið eggin og blandið þeim saman við gulrætur, ólífuolíu og vanilludropa.
- Blandið restinni saman við.
- Dreifið deiginu jafnt í bollakökuformin og bakið í 18-20 mínútur við 180°C. Mér finnst gott að stinga í þær með tannstöngli til að sjá hvort að þær eru fullbakaðar.
- Á meðan kökurnar eru að bakast þá er gott að útbúa kremið.
- Kælið kökurnar í 10-15 mínútur. Setjið kremið í sprautupoka og dreifið ofan á kökurnar eftir smekk.
- Dreifið smátt söxuðum pekanhnetum eftir smekk og njótið.
Rjómaostakrem
- Hærið rjómaosti, smjöri og vanilludropum saman í hrærivél á hröðustu stillingu þar til að blandan verður „flöffý“.
- Bætið flórsykri útí í nokkrum skömmtum og hrærið rólega saman. Bætið meiri flórsykri saman við ef ykkur finnst það þurfa.
VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU & NJÓTIÐ VEL! ♥
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
Skrifa Innlegg