fbpx

TRENDNÝTT

TÍSKUSÝNING ÚTSKRIFTARNEMA Í FATAHÖNNUN ER Í KVÖLD!

Í kvöld fer fram tískusýning útskriftarnema í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands, kl. 19:00 í Flóa, Hörpu. Áhugasamir um tísku ættu svo sannarlega ekki að láta þessa sýningu framhjá sér fara. 

Á meðfylgjandi myndum má sjá þau Sigmund og Ingerð í lokaundirbúningi fyrir sýningu kvöldsins.

Um útskriftarverkefnið: Nemendur vinna einstaklingsverkefni undir handleiðslu leiðbeinenda og þróa með sér persónulega afstöðu gagnvart því viðfangsefni sem þeir vinna með í námskeiðinu. 

Katrín María Káradóttir, fagstjóri í fatahönnun: “Fatahönnun fjallar um manninn og samband hans við fatnað, textíl, umhverfi og samfélög, í stóru samhengi og smáu. Fagið byggir á grunni hefða en er í eðli sínu samofið líðandi stund og hugmyndum okkar um framtíðina og lýsa verkefni nemenda til BA gráðu persónulegri, listrænni og jafnvel pólitískri afstöðu.”

Útskriftarnemar:

Ingerð Tórmóðsdóttir Jönsson

Julie Mølgaard Jensen

Kristín Áskelsdóttir

Sigmundur Páll Freysteinsson

Sigríður Ágústa Finnbogadóttir

Steinunn Stefánsdóttir

Þórunn Sunneva Elfarsdóttir

// TRENDNÝTT

ANGAN BAUÐ Í SUMARPARTÝ

Skrifa Innlegg