Í kvöld fer fram tískusýning útskriftarnema í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands, kl. 19:00 í Flóa, Hörpu. Áhugasamir um tísku ættu svo sannarlega ekki að láta þessa sýningu framhjá sér fara.
Á meðfylgjandi myndum má sjá þau Sigmund og Ingerð í lokaundirbúningi fyrir sýningu kvöldsins.
Um útskriftarverkefnið: Nemendur vinna einstaklingsverkefni undir handleiðslu leiðbeinenda og þróa með sér persónulega afstöðu gagnvart því viðfangsefni sem þeir vinna með í námskeiðinu.
Katrín María Káradóttir, fagstjóri í fatahönnun: “Fatahönnun fjallar um manninn og samband hans við fatnað, textíl, umhverfi og samfélög, í stóru samhengi og smáu. Fagið byggir á grunni hefða en er í eðli sínu samofið líðandi stund og hugmyndum okkar um framtíðina og lýsa verkefni nemenda til BA gráðu persónulegri, listrænni og jafnvel pólitískri afstöðu.”
Útskriftarnemar:
Ingerð Tórmóðsdóttir Jönsson
Julie Mølgaard Jensen
Kristín Áskelsdóttir
Sigmundur Páll Freysteinsson
Sigríður Ágústa Finnbogadóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Þórunn Sunneva Elfarsdóttir
// TRENDNÝTT
Skrifa Innlegg