fbpx

TRENDNÝTT

Súkkulaði – og bananakaka

KYNNING
KYNNING
Ath, í þessari uppskrift er hægt að nota ýmist smjörlíki eða smjör, fyrir áhugasama þá er einföld uppskrift af heimagerðu, laktósafríu smjöri: HÉR 


Laktósfríu mjólkurvörurnar frá Örnu henta einkar vel til baksturs. Gríska jógúrtin með súkkulaði og kaffi er ekki bara dásamlega bragðgóð ein og sér heldur er hún frábær viðbót í kökubaksturinn. Linda Ben setti saman þessa girnilegu uppskrift af súkkulaði-banana köku með skemmtilegri útgáfu af súkkulaði kremi þar sem jógúrtin kemur fyrir í köku og kremi. Trendnet mælir með að þið prufið á aðventunni.


Hráefni:
Kakan:
4 vel þroskaðir bananar
60 g smjörlíki (eða smjör, lítið mál að útbúa laktósafrítt smjör úr Örnu rjómanum) – sjá uppskrift efst í færslu.
2 tsk vanilludropar
100 g sykur
190 g hveiti
1 tsk salt
1 tsk matarsódi
2 msk kakó
200 ml kaffi og súkkulaði grísk jógúrt frá Örnu (heil dós)
Krem:
200 g smjörlíki
300 g flórsykur
2 msk kakó
100 ml kaffi og súkkulaði grísk jógúrt frá Örnu (hálf dós)
 
Aðferð: 
  1. Byrjið á því að bræða smjörlíkið/smjörið og leyfið því að kólna örlítið niður aftur.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C.
  3. Setjið banana í hrærivélina og hrærið þá vel saman þangað til þeir eru alveg maukaðir.
  4. Bætið út í skálina eggi og vanilludropum, blandið saman.
  5. Bætið út í skálina sykri, hveiti, salti, matarsóda og kakó, blandið varlega saman.
  6. Bætið svo gríska jógúrtinu saman við.
  7. Takið 20×20 cm form (eða álíka) og smyrjið það vel, hellið deiginu í formið og bakið í um það bil 40 mín eða þangað til kakan er bökuð í gegn.
  8. Kælið kökuna og útbúið kremið á meðan.
  9. Hrærið smjörlíkið mjög vel þangað til það er orðið létt og loftmikið.
  10. Bætið þá út í flórsykri og kakó, hrærið mjög vel saman þangað til blandan verður létt og loftmikil.
  11. Bætið þá út í gríska jógúritnu vel saman við.
  12. Smyrjið kreminu á kalda kökuna og skreytið eftir smekk. 

Þessa verðið þið að prufa – verði ykkur að góðu!

Fleiri uppskriftir frá Örnu, finnið þið: HÉR

//
TRENDNET

 

KÆRLEIKSKÚLAN 2018 KYNNT Í DAG // STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA & FATLAÐRA

Skrifa Innlegg