fbpx

TRENDNÝTT

MÆÐRADAGSKERTIN FARA Í SÖLU Í DAG – ÞÚ ERT ELSKULEG MAMMA MÍN

KYNNING

Árlegt söluátak Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur hefst í  dag,  þriðjudaginn 5. maí, með sölu á Mæðrablóminu sem er Leyniskilaboðakerti þriðja árið í röð.

Allur ágóði af sölu Mæðrablómsins rennur óskertur til Menntunarsjóðsins sem styrkir tekjulágar konur til mennta. Markmið sjóðsins er að efla styrkþega til mennta og auka þannig möguleika þeirra á að finna góð störf sem geta tryggt þeim og fjölskyldum þeirra öruggari framtíð. Á síðasta ári veitti sjóðurinn 52 konum styrk til náms en frá upphafi stofnunar hans árið 2012 hefur sjóðurinn veitt fleiri en 250 styrki til náms.

 

 

Söfnunarátak Menntunarsjóðs hefst formlega 5. maí í garðinum heima hjá Vigdísi Finnbogadóttir kl.12 með móttöku þar sem frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Sigríður Thorlacius, söngkona, taka á móti kertum frá stjórn Menntunarsjóðsins, Þórunni Árnadóttur, vöruhönnuði, og öðrum velunnurum sjóðsins.

Líkt og undanfarin ár eru frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og frú Eliza Reid, forsetafrú, sérstakir stuðningsaðilar átaksins en nú bætist Sigríður Thorlacius, söngkona, í þeirra hóp. Allar hafa þær valið sinn leyniskilaboðatexta í kertin tileinkaðan mæðrum.

Kertin eru í postulínsskálum og þegar kveikt er á þeim og vaxið bráðnar koma smátt og smátt í ljós skilaboð á botni skálarinnar. Þórunn Árnadóttir er hönnuður kertisins og gefur hún vinnu sína nú þriðja árið í röð. Alls geta kaupendur valið um fimm mismunandi texta.  Kertin eru kjörin tækifærisgjöf, sérstaklega á mæðradaginn, og bjóða upp á óvenjulega og skemmtilega upplifun.

 

Kertin verða til sölu í verslunum Pennans Eymundssonar á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, í Epal í Skeifunni og Kringlunni, Snúrunni, Eldum Rétt, Nettó og hjá Heimkaup.is, auðvitað er hægt að kaupa kertið á netinu með því að smella HÉR

Sölutími er frá 5.-19. maí. Trendnet mælir með!

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Mæðrastyrksnefndar eða á Facebook síðu Menntunarsjóðsins

//
TRENDNET

 

HVAÐ HEITA STJÖRNURNAR Í RAUN OG VERU?

Skrifa Innlegg