fbpx

TRENDNÝTT

Lindex styður baráttuna gegn brjóstakrabbameini 9.árið í röð

KYNNING

 

Gleðilegan bleikan föstudag.

Níunda árið í röð styður Lindex baráttuna við brjóstakrabbamein á Íslandi með hjálp viðskiptavina sinna og starfsfólks. Nú í ár mun 10% af allri sölu helgina 16.-18. okt renna til styrktar málefninu auk þess sem fyrirtækið gefur allan ágóða af bleika pokanum og bleiku regnhlífinni. Bleiku vörurnar eru báðar sérhannaðar úr endurunnum efnum. Trendnet tekur hattinn ofan fyrir góðvild Lindex!


 

Við trúum því að við séum sterkari saman og að með sameiginlegu átaki getum við skipt sköpum. Hjá Lindex starfa margar konur og svo eru viðskiptavinir okkar að mestum hluta konur og við finnum til ábyrgðar gagnvart þeim öllum og því finnst okkur mikilvægt að leggja okkar að mörkum í baráttunni. “Frá upphafi hafa safnast um 24 milljónir og það er allt að þakka okkar frábæru viðskiptavinum og starfsfólki” segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir umboðsaðili Lindex á Íslandi.

 

Bleiki fjölnota pokinn og bleika regnhlífin fást í öllum verslunum og í netverslun Lindex, www.lindex.is

 

//
TRENDNET

Íslensk lausn við þurrum höndum vegna sprittnotkunar

Skrifa Innlegg