fbpx

TRENDNÝTT

KARL LAGERFELD – LÍFIÐ HANS Í MYNDUM

Karl Lagerfeld einn þekktasti og dáðasti tískuhönnuður sögunnar, með einstakan feril í tískuheiminum sem nær yfir sjö áratugi, lést í dag, þann 19. febrúar 2019.

Það er við hæfi að fylgja sorgarfréttum dagsins eftir með því að endurbirta og þýða færslu frá Vogue með myndum úr lífi Karl Lagerfelds sem gefa smá innsýn í heim þessa einstaka manns.

Karl Lagerfeld, hönnuður, listamaður og ljósmyndari lést 85 ára að aldri. Karl Lagerfeld var einnig frægur fyrir mjög framsæknar og stundum umdeildar skoðanir sínar, hann hneysklaði og gladdi tískuheiminn jafnt í gegnum langan og heillandi feril sinn.

“Tökum sem dæmi Fendi sýninguna árið 1993, þar sem hann réði ítölsku klámstjörnuna Moana Pozzi til að klæðast blúndusundfötum, sem fékk marga ritstjóra, meðal annars Önnu Wintour til að ganga út hneiksluð. Eða þegar hann flutti 265 tonn af ísklaka frá Skandinavíu til París í Grand Palais höllina fyrir haust / vetur sýningu Chanel 2010.”

Lagerfeld hafði gífurleg áhrif á tískuiðnaðinn í gegnum háleitar stöður sínar innan bæði Chanel þar sem hann gegndi stöðu listræns stjórnanda frá árinu 1983 til 2019, ásamt Fendi þar sem hann starfaði með Silvia Fendi frá árinu 1965, ásamt því að hanna sína eigin línu. Hann var undir gífurlegu vinnuálagi alla tíð, 8 línur á ári fyrir Chanel, 5 línur á ári hjá Fendi og 2 línur á ári hjá hans eigin merki. Og þessar 15 sýningar innihalda ekki ljósmyndun hans og bækur. Hans gífurlegu vinsældir sýndu sig vel þegar hann tók saman við H&M árið 2004 í þeirra fyrsta samstarfsverkefni við tískuhönnuð. Línan seldist öll upp á örfáum dögum.

“I do it like I breathe. I wake up in the middle of the night and have an idea. I put it on a card I have next to my bed and I make the sketches in the morning before I forget it.”

Lítum yfir einstakar myndir af goðinu, Karl Lagerfeld.

1954

Karl Lagerfeld var 21 árs gamall þegar hann vann fyrstu verðlaun í ullarkápuflokki í hönnunarsamkeppni alþjóðlegu ullarsamtakanna í París, sem núna eru þekkt sem ‘The Woolmark Prize’. Christian Dior og Hubert de Givenchy voru á meðal dómara, og Lagerfeld var fljótlega ráðinn af Pierre Balmain, sem setti vinningskápuna í framleiðslu. Þess má geta að Saint Laurent þá 16 ára, vann kjólaflokkinn þetta árið og þeir urðu vinir.

Eftir að hafa starfað í nokkur ár hjá Balmain, varð Lagerfeld gerður að listrænum stjórnanda hjá Jean Patou hátískuhúsinu árið 1958.
1964

Árið 1962 hóf Lagerfeld að starfa sjálfstætt og vann með Mario Valentino, Repetto, Monoprix og Tiziani. Hann byrjaði að hanna fyrir Chloé árið 1964 og það leið ekki langur tími þar til hann var farinn að hanna allar línurnar og gerði Chloé að alþjóðlega þekktu hönnunarhúsi. Það var stofnandi Chloé, Gaby Aghion sem hvatti Karl til að nálgast hönnunina á afslappaðri hátt en hann var þjálfaður í með hátískuna “haute couture”. 

Árið 1965 bættist Fendi, á kúnna listann. Með nánu samstarfi við Fendi systurnar hjálpaði Lagerfeld að gera ítalska merkið að heimsþekktu hönnunarhúsi með áherslu á að hanna með lúxusfeld.

1970
Lagerfeld tók ásfóstri við dramatíska skyrtukraga og mynstraðar skyrtur á áttunda áratugnum og hélt einnig áfram að vera sjálfstætt starfandi.

1973
Eins og alltaf voru það litlu smáatriðin sem fullkomnuðu klæðnaðinn hans, það var hálsklútur, bindispinni, skeggið, vasaklútur, næla og stækkunargler í keðju

1982

Kvöldið sem hann fundaði með yfirstjórn Chanel, sat hann fyrir með dökk gleraugu og með þéttingsfast bindi, hér blómstrar einkennisklæðnaður Lagerfeld.

26. júlí 1983
Það var árið 1983 sem Lagerfeld tók við sem yfirhönnuður Chanel þar sem hann andaði fersku lífi í vörumerkið og tók á móti nýjum kynslóðum af viðskiptavinum.
1985

Sólgleraugu á hvaða tíma dags, inni eða úti varð hluti að einkennisklæðnaði Karls.

1987
Lagerfeld var frægur fyrir samband sitt við Birman köttinn sinn Choupette, en hann átti einnig hunda vini – eins og þennan Jack Russel terrier.

1990
Um innanhússhönnun hafði hann þetta að segja : “The most important piece in the house is the garbage can.”
1992
Lagerfeld tók við Martine Sitbon hjá Chloé árið 1992 sem listrænn stjórnandi merkisins í annað skiptið á ferlinum, ásamt því að halda samning sínum við Fendi, starfa fyrir Chanel og stýra sínu eigin merki.
1995
Með blævænginn sem var á tímabili hluti af hans einkennisklæðnaði.
2002
Hér er Lagerfeld búinn að grennast töluvert, hárið orðið alveg hvítt og nýr einkennis fylgihlutur mættur – beltið.
Karl Lagerfeld missti um 45 kíló árið 2001, sem hann sagðist hafa gert til að passa í Dior Homme jakkaföt. Bókin The Karl Lagerfeld Diet, varð bestseller á alþjóða vísu.
2012
Flottur á haust / vetur sýningu Chanel á tískuvikunni í París.
2014
2017  
Chanel Cruise sýningin í París með guðsyni sínum.
2. október 2018

Eftir Chanel vor / sumar 2019 sýninguna, ásamt Virginie Viard tískustjóra Chanel / fashion studio director og hans hægri hönd.

4. desember 2018 
Með Virginie Viard tískustjóra og Hudson Kroenig guðsoni sínum á lokasýningu Chanel Metiers d’Art 2018 í New York. Á hátískusýningu Chanel í París í janúar hneigði Karl Lagerfeld sig ekki í fyrsta sinn eftir sýninguna vegna “þreytu” og fékk Viard til að fylla í skarðið.
//
TRENDNET

 

Karl Lagerfeld er dáinn

Skrifa Innlegg